Dagurinn í dag er auðveldur, því ég var löngu búin að ákveða að hafa hrogn og lifur. Fiskbúðin átti það til og deginum reddað.
En fyrst ég er sest niður hérna þá langar mig að bulla aðeins meira. Ég hef verið að hugsa um hvað finnst fólki vera að baki því sem sveitarfélögin og ríkið gera. Við erum öll fljót að koma með setningar eins og "svona gerir ríkið alltaf", "hvað ætlar sveitarfélagið núna að gera", "sveitarfélagið á að laga þetta eða gera þetta eða hitt". En hvað er ríkið? Hvað er sveitarfélagið? Í fyrsta lagi eru þetta okkar fyrirtæki. Í öðru lagi eru manneskjur í vinnu hjá okkur við að stjórna fyrirtækjunum og framkvæma það sem gera þarf. Sveitarfélagið gerir ekkert. Það er fólkið sem vinnur hjá sveitarfélaginu sem gerir hlutina. Þess vegna getum við tjáð okkur við þá sem sjá um framkvæmdirnar og látið í ljós óánægju og ánægju. Við eigum ekki sífellt að skýla okkur á bak við það að ríkið eða sveitarfélagið geri eða geri ekki. Við eigum að tjá okkur og segja hvernig viljum við láta reka fyrirtækin okkar. Viljum við láta moka snjó fyrir allan peninginn, viljum við reka leikskóla og grunnskóla? Hvernig leik- og grunnskóla viljum við? Hvernig viljum við að unglingavinnunni sé stýrt? Hættum að tuða um sveitarfélagið og ríkið og sendum þeim sem reka fyrirtækin okkar bréf þar sem við segjum hvernig við viljum láta reka fyrirtækin.
Wednesday, February 8, 2012
Tuesday, February 7, 2012
Súpa og brauð
Eftir langa umhugsun, bakaði ég brauð í dag. Ég bakaði brauð með hveitiklíð, graskersfræjum, sólblómafræjum og sesamfræjum. Svo bakaði ég focaccia brauð og baquette brauð. Þetta verður í kvöldmatinn ásamt linsubaunasúpu úr bókinni hennar Nönnu. Ýmis konar álegg verður í boði, t.d. pate, reyktur rauðmagi, ostur og kæfa. Svo er það höfuðverkur morgundagsins....... hvað er í matinn.
Hvað er í matinn
Ég veit ekki með aðra en hvað er í matinn er erfiðasta spurning sem ég stend frammi fyrir í daglegu amstri. Það að ákveða hvað á að vera í matinn, hafa það nógu ólíkt því sem var i gær, ekki það sama og var í fyrradag og svo eitthvað sem allir borða. Hvað má það kosta, er tími til að dúlla við það eða verður að vera eitthvað fljótlegt? Svo er það hollustan ekki má gleyma henni. Ég er búin að reyna að gera matseðil, gengur ekki upp fyrir mig. Stundum hef ég óskað þess að geta opnað bók eða vefsíðu og fengið svarið.
Nú ætla ég að reyna að blogga um hvað ég hef í matinn, kannski get ég þá notað amk. gamlar hugmyndir frá mér. Eflaust á eitthvað fleira eftir að rata hér inn, en ég lofa engu.
Nú ætla ég að reyna að blogga um hvað ég hef í matinn, kannski get ég þá notað amk. gamlar hugmyndir frá mér. Eflaust á eitthvað fleira eftir að rata hér inn, en ég lofa engu.
Subscribe to:
Posts (Atom)