Dagurinn í dag er auðveldur, því ég var löngu búin að ákveða að hafa hrogn og lifur. Fiskbúðin átti það til og deginum reddað.
En fyrst ég er sest niður hérna þá langar mig að bulla aðeins meira. Ég hef verið að hugsa um hvað finnst fólki vera að baki því sem sveitarfélögin og ríkið gera. Við erum öll fljót að koma með setningar eins og "svona gerir ríkið alltaf", "hvað ætlar sveitarfélagið núna að gera", "sveitarfélagið á að laga þetta eða gera þetta eða hitt". En hvað er ríkið? Hvað er sveitarfélagið? Í fyrsta lagi eru þetta okkar fyrirtæki. Í öðru lagi eru manneskjur í vinnu hjá okkur við að stjórna fyrirtækjunum og framkvæma það sem gera þarf. Sveitarfélagið gerir ekkert. Það er fólkið sem vinnur hjá sveitarfélaginu sem gerir hlutina. Þess vegna getum við tjáð okkur við þá sem sjá um framkvæmdirnar og látið í ljós óánægju og ánægju. Við eigum ekki sífellt að skýla okkur á bak við það að ríkið eða sveitarfélagið geri eða geri ekki. Við eigum að tjá okkur og segja hvernig viljum við láta reka fyrirtækin okkar. Viljum við láta moka snjó fyrir allan peninginn, viljum við reka leikskóla og grunnskóla? Hvernig leik- og grunnskóla viljum við? Hvernig viljum við að unglingavinnunni sé stýrt? Hættum að tuða um sveitarfélagið og ríkið og sendum þeim sem reka fyrirtækin okkar bréf þar sem við segjum hvernig við viljum láta reka fyrirtækin.
No comments:
Post a Comment