Tuesday, February 7, 2012

Hvað er í matinn

Ég veit ekki með aðra en hvað er í matinn er erfiðasta spurning sem ég stend frammi fyrir í daglegu amstri.  Það að ákveða hvað á að vera í matinn, hafa það nógu ólíkt því sem var i gær, ekki það sama og var í fyrradag og svo eitthvað sem allir borða.  Hvað má það kosta, er tími til að dúlla við það eða verður að vera eitthvað fljótlegt?  Svo er það hollustan ekki má gleyma henni.  Ég er búin að reyna að gera matseðil, gengur ekki upp fyrir mig. Stundum hef ég óskað þess að geta opnað bók eða vefsíðu og fengið svarið.
Nú ætla ég að reyna að blogga um hvað ég hef í matinn, kannski get ég þá notað amk. gamlar hugmyndir frá mér.  Eflaust á eitthvað fleira eftir að rata hér inn, en ég lofa engu.

No comments:

Post a Comment