Tuesday, October 23, 2012

Pizzasnúðar

Í nokkur ár hef ég bakað reglulega stóran skammt af pizzasnúðum til að eiga í frysti og senda börnin mín með í skólanesti.  Nú erum við Haukur Þór búin að hanna fyllingu sem er fljótleg og góð. Við ætlum að deila henni með ykkur

Pizzasnúðar
1 kg. hveiti
5 tsk þurrger eða 50 gr pressuger
1 tsk salt
1/2 dl olía
5 dl volgt vatn.
Hnoðið saman í ca 5-7 mín og látið svo hefast í amk. 1 klst.  má vera lengur.

Fylling
1 skinkubréf (200 gr)
100 gr rjómaostur
1/2 dl pizzasósa
1/2 dl rifinn ostur
Allt hrært saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota.

Skiptið deiginu í ca. 5 hluta og fletjið hvern og einn út í lengju sem er ca. 8-10 cm á breidd.  Nú er fyllingunni smurt á miðja lengjuna og henni svo rúllað upp endilangri og svo er hún skorin í mátulega bita og þeim raðað á ofnplötu.  Látið hefast lítillega þar og bakað svo í ca 10 -15 mín.

Kjötsúpa

Nú er veturinn á næsta leiti og nýtt kjöt á markaðnum.
Þá er íslensk kjötsúpa málið.

Best er hún ef kjötið er á beini, en ég geri hina oftar vegna þess að þá er hægt að ausa henni beint á diskana.

1 kg. beinlaust kjöt í bitum.
2-3 lítrar vatn
4-6 tsk. kjötkraftur eða 2-3 súputeningar
2 litlar rófur
8 gulrætur
1/2 haus hvítkál
1/2 stilkur púrrulaukur
1 dl. súpujurtir
8 kartöflur.
1 dl hrísgrjón, haframjöl eða bygg.
Grænmetið er allt skorið í litla bita og svo er allt soðið í 1 - 1 1/2 klst. 
Verði ykkur að góðu. 
Kjötsúpa er mjög góð daginn eftir.  Einnig er snilld að frysta hana.