Í nokkur ár hef ég bakað reglulega stóran skammt af pizzasnúðum til að eiga í frysti og senda börnin mín með í skólanesti. Nú erum við Haukur Þór búin að hanna fyllingu sem er fljótleg og góð. Við ætlum að deila henni með ykkur
Pizzasnúðar
1 kg. hveiti
5 tsk þurrger eða 50 gr pressuger
1 tsk salt
1/2 dl olía
5 dl volgt vatn.
Hnoðið saman í ca 5-7 mín og látið svo hefast í amk. 1 klst. má vera lengur.
Fylling
1 skinkubréf (200 gr)
100 gr rjómaostur
1/2 dl pizzasósa
1/2 dl rifinn ostur
Allt hrært saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota.
Skiptið deiginu í ca. 5 hluta og fletjið hvern og einn út í lengju sem er ca. 8-10 cm á breidd. Nú er fyllingunni smurt á miðja lengjuna og henni svo rúllað upp endilangri og svo er hún skorin í mátulega bita og þeim raðað á ofnplötu. Látið hefast lítillega þar og bakað svo í ca 10 -15 mín.
No comments:
Post a Comment