Nú er veturinn á næsta leiti og nýtt kjöt á markaðnum.
Þá er íslensk kjötsúpa málið.
Best er hún ef kjötið er á beini, en ég geri hina oftar vegna þess að þá er hægt að ausa henni beint á diskana.
1 kg. beinlaust kjöt í bitum.
2-3 lítrar vatn
4-6 tsk. kjötkraftur eða 2-3 súputeningar
2 litlar rófur
8 gulrætur
1/2 haus hvítkál
1/2 stilkur púrrulaukur
1 dl. súpujurtir
8 kartöflur.
1 dl hrísgrjón, haframjöl eða bygg.
Grænmetið er allt skorið í litla bita og svo er allt soðið í 1 - 1 1/2 klst.
Verði ykkur að góðu.
Kjötsúpa er mjög góð daginn eftir. Einnig er snilld að frysta hana.
No comments:
Post a Comment