Saturday, September 15, 2012

Súpa og brauð fyrir flottar konur

Í hádeginu í dag komu til mín 9 flottar konur.  Við vorum saman í sérkennslunámi 1998 -1999 og hittumst alltaf reglulega síðan.  Mismunandi er hvað margar komast hverju sinni en það er alltaf gaman hjá okkur.
Oftast hittumst við í morgunkaffi hjá einhverri, en núna ákvað ég að bjóða þeim í súpu og brauð. 
Ég lofaði svo að opinbera uppskriftir.
Hér koma þær.

Heilsubrauð Evu

1 ½  bolli hveiti
1 ½ bolli heilhveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk salt
5 dl súrmjólk
2 msk sýróp
1 bolli fræ t.d. sesam, hörfræ, og sólblóma ca. 3 msk. af hverju
Sýróp hrært saman við súrmjólkina, fræið sett út í, síðast þurrefnin.Sett í eitt formkökuform og bakað við 160°C í 40 til 50 mín.

Hveitibrauð

4 bollar hveiti (skipti út einum bolla af hveiti fyrir 1/2 af haframjöli, 1/4 rúgmjöl og 1/4 hveitikím)
2msk. sykur
3 tsk lyftiduft
1 tsk salt
½ bolli súrmjólk
mjólk
Sett í 1 eða 2 formkökuform og bakað við 170°C í 50 mín.

Múffur
2 egg
250 ml AB mjólk
150 gr rifinn ostur
150 gr pepperoni og skinka í litlum bitum.
200 gr hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 msk tómatkraftur
1 tsk oregano
parmesanostur til að strá yfir.
Allt hrært saman sett í múffuform og bakað við 200°C í 15 - 20 mín

Kókossúpa m. núðlum og grænmeti
800 ml kókosmjólk
1,5 l. vatn
1 grænmetisteningur eða 1 tsk af krafti.
pipar og salt.
Soðið saman og sett í skál
Fyrst raðar hver og einn í súpuskálina sína því sem hann vill og eys svo súpu yfir

Thailenskar núðlur soðnar skv. leiðbeiningum á pakka.
Raspaðar gulrætur
raspaðar rófur
pressaður hvítlaukur
smátt saxaður chili pipar
þunnt skornar radísur
þunnt skornir sveppir
smátt söxuð paprika
smátt saxaður rauðlaukur
smátt skorinn vorlaukur
túnfiskur.
Hægt er að bera með fiskisósu og garam masala ef einhver vill bragðbæta súpuna.
Þetta er góður og skemmtilegur réttur til að borða með vinum.
Verði ykkur að góðu.

Auka uppskrift
Sirrýjar pestó

Alls konar grænt salat sett í matvinnsluvél ásamt hvítlauk og möndlum sem búið er að leggja í bleyti.  Smá af parmesan osti bætt út í og svo olía þangað til mátulega þykkt.  Smakkað til með salti og pipar.



No comments:

Post a Comment