Thursday, August 30, 2012

Gamall og góður haustmatur

Nú er tiltekt í frystikistunni og því ýmislegt sem kemur á óvart.  T.d. fann ég bæði lambahjörtu og lambanýru.
Þá var eftir að ákveða hvernig matreiðslan yrði.  Ekki er langt síðan ég hafði lambalifur í Tandoori sósu þannig að íslenska leiðin varð fyrir valinu.

Lambahjörtu og nýru í brúnni sósu.

1 laukur
1 kg. hjörtu og nýru
1 msk kjötkraftur
1 msk púrtvin
1 tsk blóðberg eða timian
1 tsk pipar
1 tsk paprikuduft
2 msk maisenamjöl
750 ml vatn
1/2 dl rjómi
1/2 msk matarolía

Steikið laukinn upp úr olíunni, skerið nýrun í tvennt og takið himnuna af.  Hreinsið burt það sem þið viljið ekki hafa á þeim.  Skerið hjörtun í 6- 8 bita og hreinsið einnig af þeim umfram fitu og sinar.
Steikið hjörtun og nýrun með lauknum þar til allt hefur brúnast.
Hellið þá púrtvíninu yfir og svo vatninu.  Setjið allt kryddið út í og látið suðuna koma upp.  Lækkið hitann og látið malla í amk. 40 mín.  Látið suðuna koma upp aftur, hrærið maisenamjölið út i dl af köldu vatni og blandið saman við sósuna i pottinum.  Smakkið til með salti og pipar og öðru kryddi ef þið viljið.
Berið fram með kartöflumús, soðnum gulrótum og hvítkáli og rabbabarasultu.  Það skemmir ekki að hafa súrar gúrkur eða rauðrófur með.
Verði ykkur að góðu.
Ef það verður afgangur er meiri háttar að bera hann fram með spældum eggjum og ristuðu brauði síðar.

No comments:

Post a Comment