Saturday, November 3, 2012

íslensk sveitakæfa

Ég veit að sumir mikla það fyrir sér að búa til kæfu, en flestum finnst hún góð.  Svo frétti ég um daginn að heimagerð kæfa væri eitt hollasta álegg sem hægt væri að fá.  En ég bý til kæfu nokkrum sinnum á ári og á svo bara í frysti. Hér kemur mín uppskrift.

Kæfa
4 kg. lambaslög og/eða síður
3 laukar
1 msk salt.
Mauksjóðið kjötið í saltvatni þar til það dettur í sundur.  Geymið smá af soðinu ef kæfan verður of þykk.
Hakkið soðið kjöt og lauk og setjið í aftur í pott, látið suðuna koma upp og lækkið svo hitann og látið malla í 15 -30 mín.  Kryddið kæfuna eftir smekk.  Ég nota, kjötkraft, hvítlauksduft, lambakjötskrydd (grænt) smá engifer og stundum lárviðarlauf.  Það á að vera auðvelt að hræra í pottinum.  Ef kæfan er of þykk bætið þá smá soði út í þar til auðveldara er að hræra í henni.  Hrærið reglulega.  Setjið kæfuna svo í form eða dósir og kælið.  Skerið í mátulega bita og setjið í frysti.
Verði ykkur að góðu.

Laugardagslamb og meðlæti

Í kvöld var ég með nýjan lambahrygg.  Mig langaði í nýja uppskrift og hér er hún.

Skyrbakaður lambavöðvi

1 kg. Beinlaus lambavöðvi, læri eða fille

Marinering
250 gr. Hreint skyr
1 lítil dós kókosmjólk
1 dl. Bláber
½ dl. Bláberjasulta
¼ tsk garam masala
Tandoori á hnífsoddi
½ tsk lambakrydd.

Marineringunni hrært saman og hellt yfir kjötið, líka hægt að setja í plastpoka.  Haft í marineringunni í 4 -24 tíma.  Kjötið ásamt marineringu sett í eldfast mót og bakað í ofni við 180°C í 50 – 60 mín.

Með þessu var ég með kartöflugratín, byggsalat og balsamicgljáð grænmeti.

Kartöflugratín
1 kg. kartöflur
1/2 púrrulaukur
2 dl rjómi
1 dl rjómaostur
1 msk sinnep
salt og pipar
rifinn hvítlauksostur
kartöflurnar skornar í sneiðar og laukurinn saxaður.  Sneiðunum raðað í eldfast mót og laukurinn á milli.  Rjómi, rjómaostur sinnep og krydd hrært saman og hellt yfir.  Rifna ostinum stráð yfir.  Bakað við 180°C í 45 mín.

Byggsalat
2 dl. soðið bygg, kælt vel.
1 grænt epli skorið i litla bita
1 sellerýstöngull saxaður smátt
1 dl. grísk jógúrt.
Öllu blandað saman og geymt í kæli.

Balsamic gljáð grænmeti.
Gulrætur og hvítkál skorið í smátt, olía sett í pott og grænmetið hitað í olíunni.  1 msk. hunang og 2 msk balsamic edik hellt yfir og hitað með í smá stund. 1 dl vatn hellt yfir og soðið við vægan hita í 30 mín.

Með þessu er hægt að hafa sósu að eigin vali ef fólk vill sósu.

Kjöt var einstaklega meyrt og safaríkt.