Ég veit að sumir mikla það fyrir sér að búa til kæfu, en flestum finnst hún góð. Svo frétti ég um daginn að heimagerð kæfa væri eitt hollasta álegg sem hægt væri að fá. En ég bý til kæfu nokkrum sinnum á ári og á svo bara í frysti. Hér kemur mín uppskrift.
Kæfa
4 kg. lambaslög og/eða síður
3 laukar
1 msk salt.
Mauksjóðið kjötið í saltvatni þar til það dettur í sundur. Geymið smá af soðinu ef kæfan verður of þykk.
Hakkið soðið kjöt og lauk og setjið í aftur í pott, látið suðuna koma upp og lækkið svo hitann og látið malla í 15 -30 mín. Kryddið kæfuna eftir smekk. Ég nota, kjötkraft, hvítlauksduft, lambakjötskrydd (grænt) smá engifer og stundum lárviðarlauf. Það á að vera auðvelt að hræra í pottinum. Ef kæfan er of þykk bætið þá smá soði út í þar til auðveldara er að hræra í henni. Hrærið reglulega. Setjið kæfuna svo í form eða dósir og kælið. Skerið í mátulega bita og setjið í frysti.
Verði ykkur að góðu.
No comments:
Post a Comment