Wednesday, February 25, 2015

Hægeldað lambakjöt og afgangar af því.

Eins og allir vita þá er ég frekar löt kona og finnst gott að þurfa ekki að hafa fyrir hlutunum.  Þess vegna er hægeldaður matur alveg tilvalinn fyrir mig. 
Síðast liðna helgi ákvað ég að taka upp hálfan framhrygg af lambi.  Ég lét hann þiðna alveg.  Á föstudagskvöldið kryddaði ég hann með salti, pipar, turmerik, kúmín og að sjálfsögðu smá af lambakjötskryddinu mínu.  Svo skellti ég honum á grind, stillti ofninn á 60°C og leit svo á klukkuna og hún var ca 20.   Daginn eftir þá kom ég heim um kl. 17 og skellti grænmeti í pott og kartöflum í annan pott.  Bjó svo til sveppasósu.  Tók svo kartöflurnar og setti þær í eldfast mót ásamt smjöri og þrýsti aðeins ofan á þær svo þær sprungu.  Skellti hvítlauk, olíu og salti ofan á og inn í ofn í 20 mín.
Þetta rann allt vel ofan í okkur 3.  En samt var afgangur af lambinu.
Og þá hófst afganga vinna.
1. Byrjaði á þessu venjulega, skar niður smá af kjötinu og setti út í sósuna og hitaði allt saman.   Bar fram með kartöflum og grænmeti. 
2. Keypti tortilla kökur smurði þær með rjómaosti og salsasósu, skellti nokkrum kjötbitum ofan á og rifnum osti.  Skellti annarri tortilla köku ofan á og hitaði í ofni í 10 mín. 
3. Setti smjördeig í eldfast mót.  Steikti lauk og gulrætur í olíu, bætti smá hveiti út í og svo afgangi af sveppasósu, smá rjóma (sem var að renna út) kryddaði og brytjaði svo kjöt, kartöflur og grænmeti út í.  Lét þetta kólna aðeins og skellti svo eggi út í.  Setti þetta yfir smjördeigið og ost þar yfir. Inn í 200°C heitan ofn í 30 mín. Borið fram með hrásalati að eigin vali.
Læt þetta gott heita í bili en stefni á að vera duglegri héðan í frá en hingað til að bæta við hugmyndum.

No comments:

Post a Comment