Ákvað að bjóða elskulegri móður minni í mat í gær í tilefni af því að hún varð 75 ára. þar sem ég var að vinna til kl. 16 þá var tíminn af skornum skammti svo því var reddað með hægelduðum grísahnakka. Settur frosinn í ofnpott á þriðjudagskveldi, kryddlögur sem samanstóð af chilisósu, HP sósu, papriku, olíu, worcesterhire sósu, kúmíni, chilipipar og balsamic ediki settur yfir. Potturinn settur í ofn á 50°C og látinn malla þar þangað til kl. 17 á miðvikudegi. Þá var kryddlögurinn settur í pott og hitinn hækkaður í 100°C og haft þannig til kl. 18:15 þá var hann tekinn út og látinn standa í korter. Þá voru kartöflubátar, ´gulrótabitar og sætu kartöflubitar steiktir á pönnu í hvítlauksolíu og svo sett lok á pönnuna og hitinn settur á lægsta og látið malla í klst. Kryddlögurinn var hitaður að suðu og þykktur með hveiti. Síðan bjó ég til smá af kaldri sósu fyrir mig. Í hana fór grísk jógúrt, hvítlauksmauk, engifermauk, kóríander og ögn af steinselju. Síðan bar ég fram maísbaunir með þessu öllu. Þetta smakkaðist mjög vel og verður reynt að endurtaka þetta síðar.
Í eftirrétt var kókosdraumur.
Það er 1 skyrdós, 1/4 l. þeyttur rjómi, lítil dós kókosmjólk 1,5 dl kókosmjöl, 2 kókosbollur og 1/2 bounty. Öllu blandað saman með sleif. kókosbollurnar og bountyið skorið í litla bita áður en blandað saman við hitt. Geymt í kæliskáp í amk. 2 klst.
Borið fram með bláberjum eða bláberjamauki.
Thursday, May 14, 2015
Thursday, May 7, 2015
Lfrarbuff
Þar sem ég er frekar hrifin af lifur þá reyni ég að hafa hana sem oftast. Verst að sonurinn deilir ekki þessari aðdáun með mér. En hann er hrifinn af lifrarbuffi. Hér kemur uppskrift af lifrarbuffi.
500 gr. lifur
1 laukur
500 gr hráar kartöflur
2 msk heilhveiti
salt og pipar
Hreinsið lifrina. Hakkið lifrina, laukinn og kartöflurnar í hakkavél eða matvinnsluvél. Kryddið og blandið saman. Hrærið 2 msk af heilhveiti saman við. Látið standa í amk. 15 mín. Gerið lítil buff með skeið og setjið á klædda bökunarplötu (ofnskúffu). Setjið inn í 200°C heitan ofn og bakið í 10 mín. Berið fram með t.d. hrísgrjónum og súrsætri sósu eða kartöflum og brúnni sósu.
500 gr. lifur
1 laukur
500 gr hráar kartöflur
2 msk heilhveiti
salt og pipar
Hreinsið lifrina. Hakkið lifrina, laukinn og kartöflurnar í hakkavél eða matvinnsluvél. Kryddið og blandið saman. Hrærið 2 msk af heilhveiti saman við. Látið standa í amk. 15 mín. Gerið lítil buff með skeið og setjið á klædda bökunarplötu (ofnskúffu). Setjið inn í 200°C heitan ofn og bakið í 10 mín. Berið fram með t.d. hrísgrjónum og súrsætri sósu eða kartöflum og brúnni sósu.
Subscribe to:
Posts (Atom)