Thursday, May 7, 2015

Lfrarbuff

Þar sem ég er frekar hrifin af lifur þá reyni ég að hafa hana sem oftast.  Verst að sonurinn deilir ekki þessari aðdáun með mér. En hann er hrifinn af lifrarbuffi.  Hér kemur uppskrift af lifrarbuffi.


500 gr. lifur
1 laukur
500 gr hráar kartöflur
2 msk heilhveiti
salt og pipar


Hreinsið lifrina. Hakkið lifrina, laukinn og kartöflurnar í hakkavél eða matvinnsluvél. Kryddið og blandið saman.  Hrærið 2 msk af heilhveiti saman við.  Látið standa í amk. 15 mín.  Gerið lítil buff með skeið og setjið á klædda bökunarplötu (ofnskúffu). Setjið inn í 200°C heitan ofn og bakið í 10 mín.  Berið fram með t.d. hrísgrjónum og súrsætri sósu eða kartöflum og brúnni sósu.

No comments:

Post a Comment