Friday, February 27, 2015

Hvítlauksbrauð

Í gær bakaði ég hvítlauksbrauð.
Uppskriftin að brauðinu var ósköp venjuleg, en ég ákvað að flétta það á ýmsa lund.
Hér er myndband af því hvernig maður gerir hringbrauðið
Hin brauðin klippti ég bara upp í og lagði á víxl eins og fléttu.


Ég smurði deigið með smjöri, stráði söxuðum hvítlauk yfir og smá basilíku. 
Uppskrift að brauði.


1 kg. hveiti eða 7 bollar(notið það mjöl sem ykkur hentar best, munið bara að mæla það ekki í kílóum heldur í bollum)
5 tsk. perluger
1 tsk salt
1 tsk sykur
500 ml.vatn (volgt)
2oo ml. olía
Allt hnoðað saman í hrærivél.  Látið hnoðarann ganga í amk. 8 mín.
Látið hefast í 1- 2 klst.  Mótið deigið.  Látið hefast aftur í 1 klst. Bakið við 180°C þar til gullinn litur hefur myndast á brauðinu.

Thursday, February 26, 2015

Lasagne

Ég hef búið til lasagne í töttögu og femm ár eins og maðurinn sagði.
Ég hef bara einu sinni staðið ráðþrota og það var þegar mér var réttur pakki frá Knorr og mér sagt að búa til lasagne.  En það var samt fyndið eftir á.
En hér kemur algengasta útgáfa mín af lasagne. Í það nota ég kjötsósu, hvíta sósu, lasagneplötur og rifinn ost.


Kjötsósa
1 laukur
2-3 hvítlauksrif.
3-4 msk olía
500 gr nautahakk
1 dós hakkaðir tómatar
1 lítil dós tómatpuré
oregano, salt og pipar eftir smekk.


hvít sósa.
5- 6 msk olía
2 -3 msk hveiti.
vatn/mjólk
sellerýsalt.


Takið meðalstórt eldfast mót og setjið mjög þunnt lag af kjötsósu og nokkrar rendur af hvítri sósu.  Raðið svo lasagneplötum yfir.  Setjið svo þunnt laf af hvítri sósu og kjötsósu þar yfir og aftur lasagneplötur.  Haldið þessu áfram þar til kjötsósan klárast.  Efsta lagið á að vera kjötsósa.  Yfir þetta er svo settur rifinn ostur. Þetta er svo bakað í ofni við 180°C í 40 -50 mín.
Borið fram með salati og/eða hvítlauksbrauði.



Pestó í ódýrari kantinum.


Fyrir 2 - 3 árum síðan þá fór ég að prófa mig áfram í pestógerð.  Mér finnst pestó alveg ágætisfæða, en ekki mikið í einu.  Þannig að ansi oft var það þannig að ég keypti eða gerði pestó og það skemmdist.  Rándýrt hráefni og allt í ruslið.
Svo ég fór að fletta bókum og hugsa.  Ákvað svo að gera tilraun.  Tilraunin heppnaðist og úr varð þetta ágæta græna pestó.  Það hefur verið vinsælt í veislum með brauði, það er vinsælt á kaffistofunni í vinnunni hjá mér og uppskriftin hefur dreift sér.  Í fyrra var ég svo mönuð upp í að gera rautt pestó líka.  Og nú ætla ég að setja þessar uppskriftir hér á bloggið. 

Rautt pestó (ala Sirrý)

250 gr möndlur (með hýði eða án) lagðar í bleyti í sólarhring og skolaðar svo.

50 gr sólþurrkaðir tómatar

2-3 hvítlauksrif

8 svartar ólívur

1 msk fetaostur (olía með)

150 -200 ml olía (bragðlítil t.d. repjuolía) ekki setja alla olíuna í einu, mismunandi hvað þarf mikið.

 

Maukið möndlurnar í matvinnsluvél, bætið hvítlauk, sólþurrkuðum tómötum, ólívum og fetaosti við.

Hellið olíunni hægt saman við og maukið á milli.  Þegar æskilegri þykkt/áferð er náð þá er pestóið tilbúið. 

Það getur borgað sig að gera þetta í tveimur pörtum ef matvinnsluvélin er ekki mjög kröftug.

 

Grænt pestó

250 gr möndlur (með hýði eða án) lagðar í bleyti í sólarhring og skolaðar svo.

500 gr spínat (má vera ferskt eða frosið) Má líka nota afganga af grænu salati úr ísskápnum, bara ekki of mikið af klettasalati þá verður það rammt.

5 hvítlauksrif

400 -500 ml olía (bragðlítil t.d. repjuolía) ekki setja alla olíuna í einu, mismunandi hvað þarf mikið.

Maukið möndlurnar í matvinnsluvél, bætið hvítlauk og spínati við. Hellið olíunni hægt saman við og maukið á milli.  Þegar æskilegri þykkt/áferð er náð þá er pestóið tilbúið. 

Það getur borgað sig að gera þetta í tveimur pörtum ef matvinnsluvélin er ekki mjög kröftug.

Þetta indæla pestó má svo frysta í litlum skömmtum og afþíða eftir þörfum.  En það geymist líka alveg í 2-3 vikur í ísskáp.  Það er auðvelt að sjá þegar það skemmist því það einfaldlega myglar.
Verði ykkur að góðu.

 

Wednesday, February 25, 2015

Hægeldað lambakjöt og afgangar af því.

Eins og allir vita þá er ég frekar löt kona og finnst gott að þurfa ekki að hafa fyrir hlutunum.  Þess vegna er hægeldaður matur alveg tilvalinn fyrir mig. 
Síðast liðna helgi ákvað ég að taka upp hálfan framhrygg af lambi.  Ég lét hann þiðna alveg.  Á föstudagskvöldið kryddaði ég hann með salti, pipar, turmerik, kúmín og að sjálfsögðu smá af lambakjötskryddinu mínu.  Svo skellti ég honum á grind, stillti ofninn á 60°C og leit svo á klukkuna og hún var ca 20.   Daginn eftir þá kom ég heim um kl. 17 og skellti grænmeti í pott og kartöflum í annan pott.  Bjó svo til sveppasósu.  Tók svo kartöflurnar og setti þær í eldfast mót ásamt smjöri og þrýsti aðeins ofan á þær svo þær sprungu.  Skellti hvítlauk, olíu og salti ofan á og inn í ofn í 20 mín.
Þetta rann allt vel ofan í okkur 3.  En samt var afgangur af lambinu.
Og þá hófst afganga vinna.
1. Byrjaði á þessu venjulega, skar niður smá af kjötinu og setti út í sósuna og hitaði allt saman.   Bar fram með kartöflum og grænmeti. 
2. Keypti tortilla kökur smurði þær með rjómaosti og salsasósu, skellti nokkrum kjötbitum ofan á og rifnum osti.  Skellti annarri tortilla köku ofan á og hitaði í ofni í 10 mín. 
3. Setti smjördeig í eldfast mót.  Steikti lauk og gulrætur í olíu, bætti smá hveiti út í og svo afgangi af sveppasósu, smá rjóma (sem var að renna út) kryddaði og brytjaði svo kjöt, kartöflur og grænmeti út í.  Lét þetta kólna aðeins og skellti svo eggi út í.  Setti þetta yfir smjördeigið og ost þar yfir. Inn í 200°C heitan ofn í 30 mín. Borið fram með hrásalati að eigin vali.
Læt þetta gott heita í bili en stefni á að vera duglegri héðan í frá en hingað til að bæta við hugmyndum.