Tuesday, March 10, 2015

Graskerssúpa

Mér finnast súpur mjög góðar, því miður deilir sonurinn ekki þessu dálæti með mér.  En ég er búin að finna nokkrar súpur sem við getum borðað saman.  Graskerssúpa er ein af þeim.  Segja má að hún sé hálfgerð naglasúpa og eins og aðrar naglasúpur mjög góð og næringarrík.


Súpa fyrir 6.


1 l vatn
1 butter nut grasker afhýtt og skorið í bita
1 laukur
2 hvítlauksrif
Þetta er soðið saman í potti þar til graskerið er orðið mjúkt.
Þetta er góður grunnur í súpuna.  En það má bæta í hana nánast öllu því grænmeti sem ykkur dettur í hug.  Gulrætur, brokkolí, blómkál, hvítkál, paprika, hnúðkál, rófur (ekki mikið) sellerýrót, zucchini eða bara það sem til er í ísskápnum.  Ef grænmetið er hrátt  þá þarf að sjóða það með fyrrnefndu grænmeti, en það er líka hægt að nota afganga af steiktu eða soðnu grænmeti.
Þegar allt er orðið meyrt þá maukar maður allt saman annað hvort í matvinnsluvél, blandara eða með töfrasprota. Setur kjötkraft/grænmetiskraft eftir smekk.  Smá turmerik (ca. 1-2 tsk) svartan pipar og mér finnst mjög gott að setja smá kóriander eða kúmen.
Þegar súpan er orðin að mauki er hún hituð að suðu og borin svo fram.  Ekki er verra að splæsa smá rjómaslettu út í hana um leið og hún er borin fram.
Verði ykkur að góðu.

No comments:

Post a Comment