Þessa dagana er ég grasekkja og þess vegna erum Haukur Þór bara 2 í mat. Og hvað er til ráða fyrir konuna sem á afskaplega erfitt með að elda ofan í færri en 5? Hugmyndaflugið fór í páskafrí fyrir löngu þannig að ekkert er á því að græða. Sonurinn segir bara eitthvað gott ef hann er spurður.
En ýmislegt hefur lent á diskum okkar. Má þar nefna tortillas með hakki, baunum, salsa sósu, sýrðum rjóma og grænmeti. Egg í muffinsformi með skinku og osti/bóndabrie. Hamborgarar og franskar eldað í sömu ofnskúffunni. Grjónagrautur eldaður í örbylgjuofni og slátur. Setti kókosmjöl út á grjónagrautinn í staðinn fyrir kanil, nammi, namm. Fiskibollur með karöflum og remúlaði.
"skinku"pasta eða naglapasta, pastasósa með skinku og grænmeti ásamt því kjöti sem til fellur, Smá ostur og rjómi, pipar og oreganó. Pasta soðið al dente og borið fram með hvítlauksbrauði.
Læt ég nú staðar numið í bili en bæti hér inn jafnóðum og hugmyndirnar fæðast.
No comments:
Post a Comment