Ég er alltaf að hvetja heimilismeðlimi til að hafa áhrif á matargerðina. Núna var það Óli sem benti á að hægt væri að elda eitthvað úr hakki, Haukur Þór ákvað að Orkuboltar og kartöflur væru málið og ég bætti við soðnu blómkáli og ostasósu.
En hér kemur uppskriftin að matseðlinum.
Orkuboltar
500 gr nautahakk
1 egg
1 dl haframjöl
salt, pipar og oregano.
Öllu blandað saman í skál eða matvinnsluvél. Búnar til frekar litlar bollur og settar á ofnplötu og bakaðar í ofni við 200°C í 10 mín.
Kartöflubátar m. rósmarín.
Kartöflur þvegnar og skornar í báta. Matarolía sett í botninn á eldföstu móti, (má gjarnan vera með loki) kartöflurnar settar í mótið og kryddaðar með rósmarín. Steiktar í ofni í ca. 30 - 40 mín við
200°C.
Blómkálið er soðið í vatni með smá kjötkrafti í ca 10 -15 mín.
Ostasósa.
3- 4 msk. olía hituð í potti, 3-4 msk af hveiti hrært útí og látið sjóða saman. Þynnt með heitu vatni og soðinu af blómkálinu. 200 gr af rifnum osti sett út í og látið bráðna. Smakkað til með salti og pipar.
Verði ykkur að góðu.
Orkuboltarnir eru líka góðir með hrísgrjónum og súrsætri sósu.
No comments:
Post a Comment