Monday, March 16, 2015

Sonurinn er búinn að færa eggjabrauð upp á nýtt stig.  Kannski ekki nýtt fyrir öllum en amk. nýtt fyrir okkur.  En hér kemur tillaga að uppfærðu eggjabrauði. 
Hitið mínútugrill, heilsugrill eða hvað annað grill sem þið eigið. Brjótið 1 egg á disk og setjið ca 1 tsk af vatni út í, hrærið þetta vel saman.  Veltið 2 brauðsneiðum upp úr eggjahrærunni.  Setjið þær í grillið í ca 2 mín.  Opnið grillið og leggið skinkusneið á aðra brauðsneiðina og ost þar ofan á.  Takið svo hina brauðsneiðina og leggið ofan á.  Lokið grillinu aftur og grillið í 2-3 mín. 
Verði ykkur að góðu.



No comments:

Post a Comment