Sunday, July 29, 2012

Meiri afgangur af fiski, nú í hátíðabúningi

Afgangar geta verið góðir, stundum betri en upphaflega máltíðin, en það er smekksatriði.
Hér kemur ein uppskrift sem er frekar ljúffeng.
Fiskirönd
300 gr. soðinn fiskur (getur verið hvað sem er)
1 dós sýrður rjómi
2 1/2 dl þeyttur rjómi
4 dl. heitt fisksoð
1 pk aspic (hleypir)
salt og pipar.
Aspic er sett út í heitt fisksoðið. Öllu hinu blandað saman og fisksoðinu svo hellt saman við og blandað rólega.  Sett í form (jólakökuform) og inn í ísskáp í 3-4 tíma.
Borið fram með kaldri sósu (hvítlaukssósu), grænmeti og ristuðu brauði. 
Ekki slæmt að hafa gott pestó með.

Saturday, July 28, 2012

Bestu kartöflur í heimi (að mínu mati)

Mér finnast nýjar íslenskar kartöflur besta meðlæti í heimi.  Þegar ég er svo búin að grilla þær eru þær besti matur í heimi.  Ég skola slatta af litlum nýjum kartöflum í vatni, set þær svo blautar í álpappir, strái svolitlu af grófu salti á þær og loka álpappírnum. Set svo böggulinn á efri grindina á grillinu í ca. 45 mín, sný honum 2-3. Það þarf ekkert að vera neitt annað í matinn.
Nammi namm.

Óbrunninn bbq kjúlli

Ég fór í mat til vinafólks um daginn og fékk þar grillaða kjúklingaleggi sem voru svo frábærlega góðir og ekkert brunnir en samt dökk bbq húð.  Haukur Þór borðaði meira af kjúklingi þetta kvöld en hann hefur nokkur tíma áður gert.  Ég vildi fá að vita leyndarmálið og það var auðfengið.
Þú leggur kjúklingabita í bbq sósu, gott að bæta smá hvítlauk við,  lætur hann marinerast þar í amk. 3 tíma en hann má vera þar i 2 daga.  Svo eru bitarnir settir í pott með vatni og suðan látin koma upp.  Eftir það eru þeir veiddir upp úr og settir á grillið þar til þeir eru fulleldaðir.  Algjört sælgæti.

Thursday, July 26, 2012

Brauð er gott

Ég er ekki mikið fyrir brauð en þegar ég borða brauð vil ég gott brauð.
Ég á gamla uppskrift að hveitibrauði og nota hana mikið, en það er misjafnt hvaða mjöl ég nota.  Passa bara að rúmmálið sé það sama.
Ég ætla að setja þessa upp hér inn ef einhver getur notað hana.

Hveitibrauð.
4 bollar hveiti ( eða blanda af mjöli, t.d. spelt, haframjöl, heilhveiti, rúgmjöl, hveitiklíð, hveitikím o.s.frv.)
2 msk sykur (eða 1 tsk sýróp)
3 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1/2 bolli súrmjólk eða AB mjólk
mjólk
Öllu blandað saman og mjólk bætt í þar til auðvelt er að hræra í deiginu með sleif en það er ekki þunnt.
Sett í jólakökuform og bakað við 180°C í 50 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn úr brauðinu.

Dásamlegt með reyktum laxi, kæfu, hummus eða osti. 

Monday, July 23, 2012

Afgangar

Þar sem þessi síða var upphaflega ætluð sem hugmyndasíða um nýtingu matarafganga þá er hér ein uppskrift úr afgöngum af soðnum fiski (má vera steiktur eða grillaður)

Fiskikökur
500 gr eldaður fiskur
2 egg
1 dl. mjólk
krydd að eigin vali, t.d. salt, pipar, fiskkrafturog hvítlaukur
2 dl hveiti (þarf aðeins að meta það eftir því hvað deigið er blautt)
Allt hrært saman, út í þetta má bæta lauk og/eða soðnu grænmeti að eigin vali.
Blandan er mátulega þykk ef hún lekur hægt úr skeið.
Sett á heita pönnu með skeið.  Mér finnst mátulegt að hafa kökurnar á stærð við litlar lummur/klatta.  ca. 5 cm í ummál.
Steikist báðum megin og borið fram með kartöflum, grænmeti og góðri sósu eða smjöri.

Njótið. 

köld bernaise

Eftir langa leit fann ég loks uppskrift að kaldri bernaise sósu sem er holl og góð.  Hún geymist líka vel og því tilvalin í útileguna.

Köld bernaise
2 eggjarauðu, þeyttar saman
1 msk bernaise essence
1 msk esdragon
1/2 tsk dijon sinnep
250 gr skyr (óhrært)
 Öllu blandað rólega saman og sett í kæli.
Geymist í ísskáp eða á köldum stað í amk. viku.

Frábær með grilluðu nautakjöti, meiri háttar með grilluðum fiski og svo með soðnu grænmeti.
Njótið

Græn kaka

Hér kemur uppskrift að grænni köku sem var ansi oft á boðstólum heima hjá mér þegar ég var barn.  Hún er búin að ganga í gegnum ýmsar breytingar á útliti, en uppskriftin er alltaf sú sama.  Hún hefur verið bökuð í jólakökuformi, muffinsformum, ofnskúffu, lausbotnaformi og eldföstu móti.  Eflaust eru einhver ílát ótalin.  Gíslína dóttir mín hefur alltaf verið mjög hrifin af þessarri köku og er nú yfirbakari þegar á að baka hana.  En hún var samt fjarri góðu gamni í Húnaveri þegar Haukur Þór bauð upp á hana sem afmælisköku og kakan varð heimsfræg á svipstundu.  Uppskriftin hefur nú ratað til Þýskalands og Sviss og fer eflaust til fleiri landa í framhaldi af því.  Í minni fjölskyldu er þessi kaka græn og heitir því græna kakan, en það má hafa litinn á henni eins og hver og einn vill.  Prófið endilega að baka þessa ljúffengu köku.

Græn kaka
200 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
150 gr. hveiti
½ tsk. lyftiduft
2 egg
½ glas möndludropar
6 msk. soðið vatn grænn matarlitur
Þessi uppskrift x 2 passar í skúffu
Bakað við 180°C í 40-50 mínútur. Kakan kæld.
Súkkulaðiglassúr settur yfir.

Súkkulaðiglassúr
2 bollar flórsykur
2 msk kakó
1tsk smjör
Heitt kaffi þar til mátulega þykkt.

Wednesday, July 18, 2012

Nýjar pælingar,

Fékk undarlegar hugmyndir um helgina, ætla ekki að setja hér hvað er í matinn, heldur uppskriftir af því sem mér og fólkinu í kringum mig finnst gott. Hef ekki tíma í það núna en kemur fljótlega.  Kannski seinna í kvöld.