Þar sem þessi síða var upphaflega ætluð sem hugmyndasíða um nýtingu matarafganga þá er hér ein uppskrift úr afgöngum af soðnum fiski (má vera steiktur eða grillaður)
Fiskikökur
500 gr eldaður fiskur
2 egg
1 dl. mjólk
krydd að eigin vali, t.d. salt, pipar, fiskkrafturog hvítlaukur
2 dl hveiti (þarf aðeins að meta það eftir því hvað deigið er blautt)
Allt hrært saman, út í þetta má bæta lauk og/eða soðnu grænmeti að eigin vali.
Blandan er mátulega þykk ef hún lekur hægt úr skeið.
Sett á heita pönnu með skeið. Mér finnst mátulegt að hafa kökurnar á stærð við litlar lummur/klatta. ca. 5 cm í ummál.
Steikist báðum megin og borið fram með kartöflum, grænmeti og góðri sósu eða smjöri.
Njótið.
No comments:
Post a Comment