Ég er ekki mikið fyrir brauð en þegar ég borða brauð vil ég gott brauð.
Ég á gamla uppskrift að hveitibrauði og nota hana mikið, en það er misjafnt hvaða mjöl ég nota. Passa bara að rúmmálið sé það sama.
Ég ætla að setja þessa upp hér inn ef einhver getur notað hana.
Hveitibrauð.
4 bollar hveiti ( eða blanda af mjöli, t.d. spelt, haframjöl, heilhveiti, rúgmjöl, hveitiklíð, hveitikím o.s.frv.)
2 msk sykur (eða 1 tsk sýróp)
3 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1/2 bolli súrmjólk eða AB mjólk
mjólk
Öllu blandað saman og mjólk bætt í þar til auðvelt er að hræra í deiginu með sleif en það er ekki þunnt.
Sett í jólakökuform og bakað við 180°C í 50 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn úr brauðinu.
Dásamlegt með reyktum laxi, kæfu, hummus eða osti.
No comments:
Post a Comment