Ég fór í mat til vinafólks um daginn og fékk þar grillaða kjúklingaleggi sem voru svo frábærlega góðir og ekkert brunnir en samt dökk bbq húð. Haukur Þór borðaði meira af kjúklingi þetta kvöld en hann hefur nokkur tíma áður gert. Ég vildi fá að vita leyndarmálið og það var auðfengið.
Þú leggur kjúklingabita í bbq sósu, gott að bæta smá hvítlauk við, lætur hann marinerast þar í amk. 3 tíma en hann má vera þar i 2 daga. Svo eru bitarnir settir í pott með vatni og suðan látin koma upp. Eftir það eru þeir veiddir upp úr og settir á grillið þar til þeir eru fulleldaðir. Algjört sælgæti.
No comments:
Post a Comment