Mér finnast nýjar íslenskar kartöflur besta meðlæti í heimi. Þegar ég er svo búin að grilla þær eru þær besti matur í heimi. Ég skola slatta af litlum nýjum kartöflum í vatni, set þær svo blautar í álpappir, strái svolitlu af grófu salti á þær og loka álpappírnum. Set svo böggulinn á efri grindina á grillinu í ca. 45 mín, sný honum 2-3. Það þarf ekkert að vera neitt annað í matinn.
Nammi namm.
No comments:
Post a Comment