Ákvað að bjóða elskulegri móður minni í mat í gær í tilefni af því að hún varð 75 ára. þar sem ég var að vinna til kl. 16 þá var tíminn af skornum skammti svo því var reddað með hægelduðum grísahnakka. Settur frosinn í ofnpott á þriðjudagskveldi, kryddlögur sem samanstóð af chilisósu, HP sósu, papriku, olíu, worcesterhire sósu, kúmíni, chilipipar og balsamic ediki settur yfir. Potturinn settur í ofn á 50°C og látinn malla þar þangað til kl. 17 á miðvikudegi. Þá var kryddlögurinn settur í pott og hitinn hækkaður í 100°C og haft þannig til kl. 18:15 þá var hann tekinn út og látinn standa í korter. Þá voru kartöflubátar, ´gulrótabitar og sætu kartöflubitar steiktir á pönnu í hvítlauksolíu og svo sett lok á pönnuna og hitinn settur á lægsta og látið malla í klst. Kryddlögurinn var hitaður að suðu og þykktur með hveiti. Síðan bjó ég til smá af kaldri sósu fyrir mig. Í hana fór grísk jógúrt, hvítlauksmauk, engifermauk, kóríander og ögn af steinselju. Síðan bar ég fram maísbaunir með þessu öllu. Þetta smakkaðist mjög vel og verður reynt að endurtaka þetta síðar.
Í eftirrétt var kókosdraumur.
Það er 1 skyrdós, 1/4 l. þeyttur rjómi, lítil dós kókosmjólk 1,5 dl kókosmjöl, 2 kókosbollur og 1/2 bounty. Öllu blandað saman með sleif. kókosbollurnar og bountyið skorið í litla bita áður en blandað saman við hitt. Geymt í kæliskáp í amk. 2 klst.
Borið fram með bláberjum eða bláberjamauki.
Thursday, May 14, 2015
Thursday, May 7, 2015
Lfrarbuff
Þar sem ég er frekar hrifin af lifur þá reyni ég að hafa hana sem oftast. Verst að sonurinn deilir ekki þessari aðdáun með mér. En hann er hrifinn af lifrarbuffi. Hér kemur uppskrift af lifrarbuffi.
500 gr. lifur
1 laukur
500 gr hráar kartöflur
2 msk heilhveiti
salt og pipar
Hreinsið lifrina. Hakkið lifrina, laukinn og kartöflurnar í hakkavél eða matvinnsluvél. Kryddið og blandið saman. Hrærið 2 msk af heilhveiti saman við. Látið standa í amk. 15 mín. Gerið lítil buff með skeið og setjið á klædda bökunarplötu (ofnskúffu). Setjið inn í 200°C heitan ofn og bakið í 10 mín. Berið fram með t.d. hrísgrjónum og súrsætri sósu eða kartöflum og brúnni sósu.

Friday, March 27, 2015
Hvað er hægt að elda handa 2 manneskjum.
Þessa dagana er ég grasekkja og þess vegna erum Haukur Þór bara 2 í mat. Og hvað er til ráða fyrir konuna sem á afskaplega erfitt með að elda ofan í færri en 5? Hugmyndaflugið fór í páskafrí fyrir löngu þannig að ekkert er á því að græða. Sonurinn segir bara eitthvað gott ef hann er spurður.
En ýmislegt hefur lent á diskum okkar. Má þar nefna tortillas með hakki, baunum, salsa sósu, sýrðum rjóma og grænmeti. Egg í muffinsformi með skinku og osti/bóndabrie. Hamborgarar og franskar eldað í sömu ofnskúffunni. Grjónagrautur eldaður í örbylgjuofni og slátur. Setti kókosmjöl út á grjónagrautinn í staðinn fyrir kanil, nammi, namm. Fiskibollur með karöflum og remúlaði.
"skinku"pasta eða naglapasta, pastasósa með skinku og grænmeti ásamt því kjöti sem til fellur, Smá ostur og rjómi, pipar og oreganó. Pasta soðið al dente og borið fram með hvítlauksbrauði.
Læt ég nú staðar numið í bili en bæti hér inn jafnóðum og hugmyndirnar fæðast.

Monday, March 16, 2015
Sonurinn er búinn að færa eggjabrauð upp á nýtt stig. Kannski ekki nýtt fyrir öllum en amk. nýtt fyrir okkur. En hér kemur tillaga að uppfærðu eggjabrauði.
Hitið mínútugrill, heilsugrill eða hvað annað grill sem þið eigið. Brjótið 1 egg á disk og setjið ca 1 tsk af vatni út í, hrærið þetta vel saman. Veltið 2 brauðsneiðum upp úr eggjahrærunni. Setjið þær í grillið í ca 2 mín. Opnið grillið og leggið skinkusneið á aðra brauðsneiðina og ost þar ofan á. Takið svo hina brauðsneiðina og leggið ofan á. Lokið grillinu aftur og grillið í 2-3 mín.
Verði ykkur að góðu.

Friday, March 13, 2015
Borðar þú popp?
Popp er gott snakk. Örbylgjupopp er sæmilegt snakk. Popp poppað úr maísbaunum í potti er mjög gott snakk. Popp poppað úr maísbaunum í potti með kókosolíu er hættulega gott snakk.
Ég prófaði einhvern tíma í haust að setja 1-2 tsk. af kókosolíu í pott og kveikja undir á hæsta straum. Setja svo botnfylli af maísbaunum og loka pottinum vel. Bíða svo þar popphljóðin heyrast, hrista þá pottinn aðeins og setja hann aftur á helluna. Þegar popphljóðin hætta eða orðið er langt á milli tek pottinn af hellunni og helli poppinu í skál. Sumir vilja salta aðrir ekki. Ég salta þegar búið er að poppa.

Tuesday, March 10, 2015
Graskerssúpa
Mér finnast súpur mjög góðar, því miður deilir sonurinn ekki þessu dálæti með mér. En ég er búin að finna nokkrar súpur sem við getum borðað saman. Graskerssúpa er ein af þeim. Segja má að hún sé hálfgerð naglasúpa og eins og aðrar naglasúpur mjög góð og næringarrík.
Súpa fyrir 6.
1 l vatn
1 butter nut grasker afhýtt og skorið í bita
1 laukur
2 hvítlauksrif
Þetta er soðið saman í potti þar til graskerið er orðið mjúkt.
Þetta er góður grunnur í súpuna. En það má bæta í hana nánast öllu því grænmeti sem ykkur dettur í hug. Gulrætur, brokkolí, blómkál, hvítkál, paprika, hnúðkál, rófur (ekki mikið) sellerýrót, zucchini eða bara það sem til er í ísskápnum. Ef grænmetið er hrátt þá þarf að sjóða það með fyrrnefndu grænmeti, en það er líka hægt að nota afganga af steiktu eða soðnu grænmeti.
Þegar allt er orðið meyrt þá maukar maður allt saman annað hvort í matvinnsluvél, blandara eða með töfrasprota. Setur kjötkraft/grænmetiskraft eftir smekk. Smá turmerik (ca. 1-2 tsk) svartan pipar og mér finnst mjög gott að setja smá kóriander eða kúmen.
Þegar súpan er orðin að mauki er hún hituð að suðu og borin svo fram. Ekki er verra að splæsa smá rjómaslettu út í hana um leið og hún er borin fram.

2-3 bitar af ýsu eða öðrum fiski
En og aftur eru það afgangar sem heilla mig.
Í síðustu viku lenti ég í því að eiga 3 litla bita af soðinni ýsu. Ekki nóg í plokkfisk handa okkur 3. Hefði getað fryst þetta og notað í plokkfisk seinna, en ákvað að prófa að búa til salat. Já af hverju er ekki hægt að nota ýsu í salat eins og túnfisk. Ég sauð 4 egg. Stappaði ýsuna vel niður blandaði söxuðum rauðlauk saman við ásamt örlitlu af hvítlauk, smá sinnepssletta, eggin kæld og skorin í kurl og svo mayonnaise og grísk jógúrt þangað til mátulega þykkt (þunnt). Pínu pipar og smá herbamare. Voila, eitt besta salat sem hefur verið hér á borðum.

Friday, March 6, 2015
Orkuboltar með kartöflum og ostasósu.
Ég er alltaf að hvetja heimilismeðlimi til að hafa áhrif á matargerðina. Núna var það Óli sem benti á að hægt væri að elda eitthvað úr hakki, Haukur Þór ákvað að Orkuboltar og kartöflur væru málið og ég bætti við soðnu blómkáli og ostasósu.
En hér kemur uppskriftin að matseðlinum.
Orkuboltar
500 gr nautahakk
1 egg
1 dl haframjöl
salt, pipar og oregano.
Öllu blandað saman í skál eða matvinnsluvél. Búnar til frekar litlar bollur og settar á ofnplötu og bakaðar í ofni við 200°C í 10 mín.
Kartöflubátar m. rósmarín.
Kartöflur þvegnar og skornar í báta. Matarolía sett í botninn á eldföstu móti, (má gjarnan vera með loki) kartöflurnar settar í mótið og kryddaðar með rósmarín. Steiktar í ofni í ca. 30 - 40 mín við
200°C.
Blómkálið er soðið í vatni með smá kjötkrafti í ca 10 -15 mín.
Ostasósa.
3- 4 msk. olía hituð í potti, 3-4 msk af hveiti hrært útí og látið sjóða saman. Þynnt með heitu vatni og soðinu af blómkálinu. 200 gr af rifnum osti sett út í og látið bráðna. Smakkað til með salti og pipar.
Verði ykkur að góðu.
Orkuboltarnir eru líka góðir með hrísgrjónum og súrsætri sósu.

Friday, February 27, 2015
Hvítlauksbrauð
Í gær bakaði ég hvítlauksbrauð.
Uppskriftin að brauðinu var ósköp venjuleg, en ég ákvað að flétta það á ýmsa lund.
Hér er myndband af því hvernig maður gerir hringbrauðið
Hin brauðin klippti ég bara upp í og lagði á víxl eins og fléttu.
Ég smurði deigið með smjöri, stráði söxuðum hvítlauk yfir og smá basilíku.
Uppskrift að brauði.
1 kg. hveiti eða 7 bollar(notið það mjöl sem ykkur hentar best, munið bara að mæla það ekki í kílóum heldur í bollum)
5 tsk. perluger
1 tsk salt
1 tsk sykur
500 ml.vatn (volgt)
2oo ml. olía
Allt hnoðað saman í hrærivél. Látið hnoðarann ganga í amk. 8 mín.
Látið hefast í 1- 2 klst. Mótið deigið. Látið hefast aftur í 1 klst. Bakið við 180°C þar til gullinn litur hefur myndast á brauðinu.

Thursday, February 26, 2015
Lasagne
Ég hef búið til lasagne í töttögu og femm ár eins og maðurinn sagði.
Ég hef bara einu sinni staðið ráðþrota og það var þegar mér var réttur pakki frá Knorr og mér sagt að búa til lasagne. En það var samt fyndið eftir á.
En hér kemur algengasta útgáfa mín af lasagne. Í það nota ég kjötsósu, hvíta sósu, lasagneplötur og rifinn ost.
Kjötsósa
1 laukur
2-3 hvítlauksrif.
3-4 msk olía
500 gr nautahakk
1 dós hakkaðir tómatar
1 lítil dós tómatpuré
oregano, salt og pipar eftir smekk.
hvít sósa.
5- 6 msk olía
2 -3 msk hveiti.
vatn/mjólk
sellerýsalt.
Takið meðalstórt eldfast mót og setjið mjög þunnt lag af kjötsósu og nokkrar rendur af hvítri sósu. Raðið svo lasagneplötum yfir. Setjið svo þunnt laf af hvítri sósu og kjötsósu þar yfir og aftur lasagneplötur. Haldið þessu áfram þar til kjötsósan klárast. Efsta lagið á að vera kjötsósa. Yfir þetta er svo settur rifinn ostur. Þetta er svo bakað í ofni við 180°C í 40 -50 mín.
Borið fram með salati og/eða hvítlauksbrauði.

Pestó í ódýrari kantinum.
Fyrir 2 - 3 árum síðan þá fór ég að prófa mig áfram í pestógerð. Mér finnst pestó alveg ágætisfæða, en ekki mikið í einu. Þannig að ansi oft var það þannig að ég keypti eða gerði pestó og það skemmdist. Rándýrt hráefni og allt í ruslið.
Svo ég fór að fletta bókum og hugsa. Ákvað svo að gera tilraun. Tilraunin heppnaðist og úr varð þetta ágæta græna pestó. Það hefur verið vinsælt í veislum með brauði, það er vinsælt á kaffistofunni í vinnunni hjá mér og uppskriftin hefur dreift sér. Í fyrra var ég svo mönuð upp í að gera rautt pestó líka. Og nú ætla ég að setja þessar uppskriftir hér á bloggið.
Rautt pestó (ala Sirrý)
250
gr möndlur (með hýði eða án) lagðar í bleyti í sólarhring og skolaðar svo.
50
gr sólþurrkaðir tómatar
2-3
hvítlauksrif
8
svartar ólívur
1
msk fetaostur (olía með)
150
-200 ml olía (bragðlítil t.d. repjuolía) ekki setja alla olíuna í einu,
mismunandi hvað þarf mikið.
Maukið
möndlurnar í matvinnsluvél, bætið hvítlauk, sólþurrkuðum tómötum, ólívum og
fetaosti við.
Hellið
olíunni hægt saman við og maukið á milli.
Þegar æskilegri þykkt/áferð er náð þá er pestóið tilbúið.
Það
getur borgað sig að gera þetta í tveimur pörtum ef matvinnsluvélin er ekki mjög
kröftug.
Grænt pestó
250
gr möndlur (með hýði eða án) lagðar í bleyti í sólarhring og skolaðar svo.
500
gr spínat (má vera ferskt eða frosið) Má líka nota afganga af grænu salati úr ísskápnum, bara ekki of mikið af klettasalati þá verður það rammt.
5
hvítlauksrif
400
-500 ml olía (bragðlítil t.d. repjuolía) ekki setja alla olíuna í einu,
mismunandi hvað þarf mikið.
Maukið
möndlurnar í matvinnsluvél, bætið hvítlauk og spínati við. Hellið olíunni hægt
saman við og maukið á milli. Þegar
æskilegri þykkt/áferð er náð þá er pestóið tilbúið.
Það
getur borgað sig að gera þetta í tveimur pörtum ef matvinnsluvélin er ekki mjög
kröftug.
Þetta indæla pestó má svo frysta í litlum skömmtum og afþíða eftir þörfum. En það geymist líka alveg í 2-3 vikur í ísskáp. Það er auðvelt að sjá þegar það skemmist því það einfaldlega myglar.
Verði ykkur að góðu.
Wednesday, February 25, 2015
Hægeldað lambakjöt og afgangar af því.
Eins og allir vita þá er ég frekar löt kona og finnst gott að þurfa ekki að hafa fyrir hlutunum. Þess vegna er hægeldaður matur alveg tilvalinn fyrir mig.
Síðast liðna helgi ákvað ég að taka upp hálfan framhrygg af lambi. Ég lét hann þiðna alveg. Á föstudagskvöldið kryddaði ég hann með salti, pipar, turmerik, kúmín og að sjálfsögðu smá af lambakjötskryddinu mínu. Svo skellti ég honum á grind, stillti ofninn á 60°C og leit svo á klukkuna og hún var ca 20. Daginn eftir þá kom ég heim um kl. 17 og skellti grænmeti í pott og kartöflum í annan pott. Bjó svo til sveppasósu. Tók svo kartöflurnar og setti þær í eldfast mót ásamt smjöri og þrýsti aðeins ofan á þær svo þær sprungu. Skellti hvítlauk, olíu og salti ofan á og inn í ofn í 20 mín.
Þetta rann allt vel ofan í okkur 3. En samt var afgangur af lambinu.
Og þá hófst afganga vinna.
1. Byrjaði á þessu venjulega, skar niður smá af kjötinu og setti út í sósuna og hitaði allt saman. Bar fram með kartöflum og grænmeti.
2. Keypti tortilla kökur smurði þær með rjómaosti og salsasósu, skellti nokkrum kjötbitum ofan á og rifnum osti. Skellti annarri tortilla köku ofan á og hitaði í ofni í 10 mín.
3. Setti smjördeig í eldfast mót. Steikti lauk og gulrætur í olíu, bætti smá hveiti út í og svo afgangi af sveppasósu, smá rjóma (sem var að renna út) kryddaði og brytjaði svo kjöt, kartöflur og grænmeti út í. Lét þetta kólna aðeins og skellti svo eggi út í. Setti þetta yfir smjördeigið og ost þar yfir. Inn í 200°C heitan ofn í 30 mín. Borið fram með hrásalati að eigin vali.
Læt þetta gott heita í bili en stefni á að vera duglegri héðan í frá en hingað til að bæta við hugmyndum.

Subscribe to:
Posts (Atom)