Ég veit að sumir mikla það fyrir sér að búa til kæfu, en flestum finnst hún góð. Svo frétti ég um daginn að heimagerð kæfa væri eitt hollasta álegg sem hægt væri að fá. En ég bý til kæfu nokkrum sinnum á ári og á svo bara í frysti. Hér kemur mín uppskrift.
Kæfa
4 kg. lambaslög og/eða síður
3 laukar
1 msk salt.
Mauksjóðið kjötið í saltvatni þar til það dettur í sundur. Geymið smá af soðinu ef kæfan verður of þykk.
Hakkið soðið kjöt og lauk og setjið í aftur í pott, látið suðuna koma upp og lækkið svo hitann og látið malla í 15 -30 mín. Kryddið kæfuna eftir smekk. Ég nota, kjötkraft, hvítlauksduft, lambakjötskrydd (grænt) smá engifer og stundum lárviðarlauf. Það á að vera auðvelt að hræra í pottinum. Ef kæfan er of þykk bætið þá smá soði út í þar til auðveldara er að hræra í henni. Hrærið reglulega. Setjið kæfuna svo í form eða dósir og kælið. Skerið í mátulega bita og setjið í frysti.
Verði ykkur að góðu.
Saturday, November 3, 2012
Laugardagslamb og meðlæti
Í kvöld var ég með nýjan lambahrygg. Mig langaði í nýja uppskrift og hér er hún.
Skyrbakaður lambavöðvi
1 kg. Beinlaus lambavöðvi, læri eða fille
Marinering
250 gr. Hreint skyr
1 lítil dós kókosmjólk
1 dl. Bláber
½ dl. Bláberjasulta
¼ tsk garam masala
Tandoori á hnífsoddi
½ tsk lambakrydd.
Marineringunni hrært saman og hellt yfir kjötið, líka hægt að setja í plastpoka. Haft í marineringunni í 4 -24 tíma. Kjötið ásamt marineringu sett í eldfast mót og bakað í ofni við 180°C í 50 – 60 mín.
Með þessu var ég með kartöflugratín, byggsalat og balsamicgljáð grænmeti.
Kartöflugratín
1 kg. kartöflur
1/2 púrrulaukur
2 dl rjómi
1 dl rjómaostur
1 msk sinnep
salt og pipar
rifinn hvítlauksostur
kartöflurnar skornar í sneiðar og laukurinn saxaður. Sneiðunum raðað í eldfast mót og laukurinn á milli. Rjómi, rjómaostur sinnep og krydd hrært saman og hellt yfir. Rifna ostinum stráð yfir. Bakað við 180°C í 45 mín.
Byggsalat
2 dl. soðið bygg, kælt vel.
1 grænt epli skorið i litla bita
1 sellerýstöngull saxaður smátt
1 dl. grísk jógúrt.
Öllu blandað saman og geymt í kæli.
Balsamic gljáð grænmeti.
Gulrætur og hvítkál skorið í smátt, olía sett í pott og grænmetið hitað í olíunni. 1 msk. hunang og 2 msk balsamic edik hellt yfir og hitað með í smá stund. 1 dl vatn hellt yfir og soðið við vægan hita í 30 mín.
Með þessu er hægt að hafa sósu að eigin vali ef fólk vill sósu.
Kjöt var einstaklega meyrt og safaríkt.
Tuesday, October 23, 2012
Pizzasnúðar
Í nokkur ár hef ég bakað reglulega stóran skammt af pizzasnúðum til að eiga í frysti og senda börnin mín með í skólanesti. Nú erum við Haukur Þór búin að hanna fyllingu sem er fljótleg og góð. Við ætlum að deila henni með ykkur
Pizzasnúðar
1 kg. hveiti
5 tsk þurrger eða 50 gr pressuger
1 tsk salt
1/2 dl olía
5 dl volgt vatn.
Hnoðið saman í ca 5-7 mín og látið svo hefast í amk. 1 klst. má vera lengur.
Fylling
1 skinkubréf (200 gr)
100 gr rjómaostur
1/2 dl pizzasósa
1/2 dl rifinn ostur
Allt hrært saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota.
Skiptið deiginu í ca. 5 hluta og fletjið hvern og einn út í lengju sem er ca. 8-10 cm á breidd. Nú er fyllingunni smurt á miðja lengjuna og henni svo rúllað upp endilangri og svo er hún skorin í mátulega bita og þeim raðað á ofnplötu. Látið hefast lítillega þar og bakað svo í ca 10 -15 mín.

Kjötsúpa
Nú er veturinn á næsta leiti og nýtt kjöt á markaðnum.
Þá er íslensk kjötsúpa málið.
Best er hún ef kjötið er á beini, en ég geri hina oftar vegna þess að þá er hægt að ausa henni beint á diskana.
1 kg. beinlaust kjöt í bitum.
2-3 lítrar vatn
4-6 tsk. kjötkraftur eða 2-3 súputeningar
2 litlar rófur
8 gulrætur
1/2 haus hvítkál
1/2 stilkur púrrulaukur
1 dl. súpujurtir
8 kartöflur.
1 dl hrísgrjón, haframjöl eða bygg.
Grænmetið er allt skorið í litla bita og svo er allt soðið í 1 - 1 1/2 klst.
Verði ykkur að góðu.
Kjötsúpa er mjög góð daginn eftir. Einnig er snilld að frysta hana.

Saturday, September 15, 2012
Súpa og brauð fyrir flottar konur
Í hádeginu í dag komu til mín 9 flottar konur. Við vorum saman í sérkennslunámi 1998 -1999 og hittumst alltaf reglulega síðan. Mismunandi er hvað margar komast hverju sinni en það er alltaf gaman hjá okkur.
Oftast hittumst við í morgunkaffi hjá einhverri, en núna ákvað ég að bjóða þeim í súpu og brauð.
Ég lofaði svo að opinbera uppskriftir.
Hér koma þær.
Hveitibrauð
Oftast hittumst við í morgunkaffi hjá einhverri, en núna ákvað ég að bjóða þeim í súpu og brauð.
Ég lofaði svo að opinbera uppskriftir.
Hér koma þær.
Heilsubrauð Evu
1 ½ bolli hveiti
1 ½ bolli heilhveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk salt
5 dl súrmjólk
2 msk sýróp
1 bolli fræ t.d. sesam, hörfræ, og sólblóma ca. 3 msk. af hverju
Sýróp hrært saman við súrmjólkina, fræið sett út í, síðast þurrefnin.Sett í eitt formkökuform og bakað við 160°C í 40 til 50 mín.
Hveitibrauð
4 bollar hveiti (skipti út einum bolla af hveiti fyrir 1/2 af haframjöli, 1/4 rúgmjöl og 1/4 hveitikím)
2msk. sykur
3 tsk lyftiduft
1 tsk salt
½ bolli súrmjólk
mjólk
Sett í 1 eða 2 formkökuform og bakað við 170°C í 50 mín.
Múffur
2 egg
250 ml AB mjólk
150 gr rifinn ostur
150 gr pepperoni og skinka í litlum bitum.
200 gr hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 msk tómatkraftur
1 tsk oregano
parmesanostur til að strá yfir.
Allt hrært saman sett í múffuform og bakað við 200°C í 15 - 20 mín
Kókossúpa m. núðlum og grænmeti
800 ml kókosmjólk
1,5 l. vatn
1 grænmetisteningur eða 1 tsk af krafti.
pipar og salt.
Soðið saman og sett í skál
Fyrst raðar hver og einn í súpuskálina sína því sem hann vill og eys svo súpu yfir
Thailenskar núðlur soðnar skv. leiðbeiningum á pakka.
Raspaðar gulrætur
raspaðar rófur
pressaður hvítlaukur
smátt saxaður chili pipar
þunnt skornar radísur
þunnt skornir sveppir
smátt söxuð paprika
smátt saxaður rauðlaukur
smátt skorinn vorlaukur
túnfiskur.
Hægt er að bera með fiskisósu og garam masala ef einhver vill bragðbæta súpuna.
Þetta er góður og skemmtilegur réttur til að borða með vinum.
Verði ykkur að góðu.
Auka uppskrift
Sirrýjar pestó
Alls konar grænt salat sett í matvinnsluvél ásamt hvítlauk og möndlum sem búið er að leggja í bleyti. Smá af parmesan osti bætt út í og svo olía þangað til mátulega þykkt. Smakkað til með salti og pipar.
Thursday, August 30, 2012
Gamall og góður haustmatur
Nú er tiltekt í frystikistunni og því ýmislegt sem kemur á óvart. T.d. fann ég bæði lambahjörtu og lambanýru.
Þá var eftir að ákveða hvernig matreiðslan yrði. Ekki er langt síðan ég hafði lambalifur í Tandoori sósu þannig að íslenska leiðin varð fyrir valinu.
Lambahjörtu og nýru í brúnni sósu.
1 laukur
1 kg. hjörtu og nýru
1 msk kjötkraftur
1 msk púrtvin
1 tsk blóðberg eða timian
1 tsk pipar
1 tsk paprikuduft
2 msk maisenamjöl
750 ml vatn
1/2 dl rjómi
1/2 msk matarolía
Steikið laukinn upp úr olíunni, skerið nýrun í tvennt og takið himnuna af. Hreinsið burt það sem þið viljið ekki hafa á þeim. Skerið hjörtun í 6- 8 bita og hreinsið einnig af þeim umfram fitu og sinar.
Steikið hjörtun og nýrun með lauknum þar til allt hefur brúnast.
Hellið þá púrtvíninu yfir og svo vatninu. Setjið allt kryddið út í og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið malla í amk. 40 mín. Látið suðuna koma upp aftur, hrærið maisenamjölið út i dl af köldu vatni og blandið saman við sósuna i pottinum. Smakkið til með salti og pipar og öðru kryddi ef þið viljið.
Berið fram með kartöflumús, soðnum gulrótum og hvítkáli og rabbabarasultu. Það skemmir ekki að hafa súrar gúrkur eða rauðrófur með.
Verði ykkur að góðu.
Ef það verður afgangur er meiri háttar að bera hann fram með spældum eggjum og ristuðu brauði síðar.

Sunday, July 29, 2012
Meiri afgangur af fiski, nú í hátíðabúningi
Afgangar geta verið góðir, stundum betri en upphaflega máltíðin, en það er smekksatriði.
Hér kemur ein uppskrift sem er frekar ljúffeng.
Fiskirönd
300 gr. soðinn fiskur (getur verið hvað sem er)
1 dós sýrður rjómi
2 1/2 dl þeyttur rjómi
4 dl. heitt fisksoð
1 pk aspic (hleypir)
salt og pipar.
Aspic er sett út í heitt fisksoðið. Öllu hinu blandað saman og fisksoðinu svo hellt saman við og blandað rólega. Sett í form (jólakökuform) og inn í ísskáp í 3-4 tíma.
Borið fram með kaldri sósu (hvítlaukssósu), grænmeti og ristuðu brauði.
Ekki slæmt að hafa gott pestó með.

Saturday, July 28, 2012
Bestu kartöflur í heimi (að mínu mati)
Mér finnast nýjar íslenskar kartöflur besta meðlæti í heimi. Þegar ég er svo búin að grilla þær eru þær besti matur í heimi. Ég skola slatta af litlum nýjum kartöflum í vatni, set þær svo blautar í álpappir, strái svolitlu af grófu salti á þær og loka álpappírnum. Set svo böggulinn á efri grindina á grillinu í ca. 45 mín, sný honum 2-3. Það þarf ekkert að vera neitt annað í matinn.
Nammi namm.
Nammi namm.
Óbrunninn bbq kjúlli
Ég fór í mat til vinafólks um daginn og fékk þar grillaða kjúklingaleggi sem voru svo frábærlega góðir og ekkert brunnir en samt dökk bbq húð. Haukur Þór borðaði meira af kjúklingi þetta kvöld en hann hefur nokkur tíma áður gert. Ég vildi fá að vita leyndarmálið og það var auðfengið.
Þú leggur kjúklingabita í bbq sósu, gott að bæta smá hvítlauk við, lætur hann marinerast þar í amk. 3 tíma en hann má vera þar i 2 daga. Svo eru bitarnir settir í pott með vatni og suðan látin koma upp. Eftir það eru þeir veiddir upp úr og settir á grillið þar til þeir eru fulleldaðir. Algjört sælgæti.

Thursday, July 26, 2012
Brauð er gott
Ég er ekki mikið fyrir brauð en þegar ég borða brauð vil ég gott brauð.
Ég á gamla uppskrift að hveitibrauði og nota hana mikið, en það er misjafnt hvaða mjöl ég nota. Passa bara að rúmmálið sé það sama.
Ég ætla að setja þessa upp hér inn ef einhver getur notað hana.
Hveitibrauð.
4 bollar hveiti ( eða blanda af mjöli, t.d. spelt, haframjöl, heilhveiti, rúgmjöl, hveitiklíð, hveitikím o.s.frv.)
2 msk sykur (eða 1 tsk sýróp)
3 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1/2 bolli súrmjólk eða AB mjólk
mjólk
Öllu blandað saman og mjólk bætt í þar til auðvelt er að hræra í deiginu með sleif en það er ekki þunnt.
Sett í jólakökuform og bakað við 180°C í 50 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn úr brauðinu.
Dásamlegt með reyktum laxi, kæfu, hummus eða osti.

Monday, July 23, 2012
Afgangar
Þar sem þessi síða var upphaflega ætluð sem hugmyndasíða um nýtingu matarafganga þá er hér ein uppskrift úr afgöngum af soðnum fiski (má vera steiktur eða grillaður)
Fiskikökur
500 gr eldaður fiskur
2 egg
1 dl. mjólk
krydd að eigin vali, t.d. salt, pipar, fiskkrafturog hvítlaukur
2 dl hveiti (þarf aðeins að meta það eftir því hvað deigið er blautt)
Allt hrært saman, út í þetta má bæta lauk og/eða soðnu grænmeti að eigin vali.
Blandan er mátulega þykk ef hún lekur hægt úr skeið.
Sett á heita pönnu með skeið. Mér finnst mátulegt að hafa kökurnar á stærð við litlar lummur/klatta. ca. 5 cm í ummál.
Steikist báðum megin og borið fram með kartöflum, grænmeti og góðri sósu eða smjöri.
Njótið.

köld bernaise
Eftir langa leit fann ég loks uppskrift að kaldri bernaise sósu sem er holl og góð. Hún geymist líka vel og því tilvalin í útileguna.
Köld bernaise
2 eggjarauðu, þeyttar saman
1 msk bernaise essence
1 msk esdragon
1/2 tsk dijon sinnep
250 gr skyr (óhrært)
Öllu blandað rólega saman og sett í kæli.
Geymist í ísskáp eða á köldum stað í amk. viku.
Frábær með grilluðu nautakjöti, meiri háttar með grilluðum fiski og svo með soðnu grænmeti.
Njótið

Græn kaka
Hér kemur uppskrift að grænni köku sem var ansi oft á boðstólum heima hjá mér þegar ég var barn. Hún er búin að ganga í gegnum ýmsar breytingar á útliti, en uppskriftin er alltaf sú sama. Hún hefur verið bökuð í jólakökuformi, muffinsformum, ofnskúffu, lausbotnaformi og eldföstu móti. Eflaust eru einhver ílát ótalin. Gíslína dóttir mín hefur alltaf verið mjög hrifin af þessarri köku og er nú yfirbakari þegar á að baka hana. En hún var samt fjarri góðu gamni í Húnaveri þegar Haukur Þór bauð upp á hana sem afmælisköku og kakan varð heimsfræg á svipstundu. Uppskriftin hefur nú ratað til Þýskalands og Sviss og fer eflaust til fleiri landa í framhaldi af því. Í minni fjölskyldu er þessi kaka græn og heitir því græna kakan, en það má hafa litinn á henni eins og hver og einn vill. Prófið endilega að baka þessa ljúffengu köku.
Græn kaka
200 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
150 gr. hveiti
½ tsk. lyftiduft
2 egg
½ glas möndludropar
6 msk. soðið vatn grænn matarlitur
Þessi uppskrift x 2 passar í skúffu
Bakað við 180°C í 40-50 mínútur. Kakan kæld.
Súkkulaðiglassúr settur yfir.
Súkkulaðiglassúr
2 bollar flórsykur
2 msk kakó
1tsk smjör
Heitt kaffi þar til mátulega þykkt.
Wednesday, July 18, 2012
Nýjar pælingar,
Fékk undarlegar hugmyndir um helgina, ætla ekki að setja hér hvað er í matinn, heldur uppskriftir af því sem mér og fólkinu í kringum mig finnst gott. Hef ekki tíma í það núna en kemur fljótlega. Kannski seinna í kvöld.
Wednesday, February 8, 2012
Auðveldur dagur og aukapælingar
Dagurinn í dag er auðveldur, því ég var löngu búin að ákveða að hafa hrogn og lifur. Fiskbúðin átti það til og deginum reddað.
En fyrst ég er sest niður hérna þá langar mig að bulla aðeins meira. Ég hef verið að hugsa um hvað finnst fólki vera að baki því sem sveitarfélögin og ríkið gera. Við erum öll fljót að koma með setningar eins og "svona gerir ríkið alltaf", "hvað ætlar sveitarfélagið núna að gera", "sveitarfélagið á að laga þetta eða gera þetta eða hitt". En hvað er ríkið? Hvað er sveitarfélagið? Í fyrsta lagi eru þetta okkar fyrirtæki. Í öðru lagi eru manneskjur í vinnu hjá okkur við að stjórna fyrirtækjunum og framkvæma það sem gera þarf. Sveitarfélagið gerir ekkert. Það er fólkið sem vinnur hjá sveitarfélaginu sem gerir hlutina. Þess vegna getum við tjáð okkur við þá sem sjá um framkvæmdirnar og látið í ljós óánægju og ánægju. Við eigum ekki sífellt að skýla okkur á bak við það að ríkið eða sveitarfélagið geri eða geri ekki. Við eigum að tjá okkur og segja hvernig viljum við láta reka fyrirtækin okkar. Viljum við láta moka snjó fyrir allan peninginn, viljum við reka leikskóla og grunnskóla? Hvernig leik- og grunnskóla viljum við? Hvernig viljum við að unglingavinnunni sé stýrt? Hættum að tuða um sveitarfélagið og ríkið og sendum þeim sem reka fyrirtækin okkar bréf þar sem við segjum hvernig við viljum láta reka fyrirtækin.

Tuesday, February 7, 2012
Súpa og brauð
Eftir langa umhugsun, bakaði ég brauð í dag. Ég bakaði brauð með hveitiklíð, graskersfræjum, sólblómafræjum og sesamfræjum. Svo bakaði ég focaccia brauð og baquette brauð. Þetta verður í kvöldmatinn ásamt linsubaunasúpu úr bókinni hennar Nönnu. Ýmis konar álegg verður í boði, t.d. pate, reyktur rauðmagi, ostur og kæfa. Svo er það höfuðverkur morgundagsins....... hvað er í matinn.
Hvað er í matinn
Ég veit ekki með aðra en hvað er í matinn er erfiðasta spurning sem ég stend frammi fyrir í daglegu amstri. Það að ákveða hvað á að vera í matinn, hafa það nógu ólíkt því sem var i gær, ekki það sama og var í fyrradag og svo eitthvað sem allir borða. Hvað má það kosta, er tími til að dúlla við það eða verður að vera eitthvað fljótlegt? Svo er það hollustan ekki má gleyma henni. Ég er búin að reyna að gera matseðil, gengur ekki upp fyrir mig. Stundum hef ég óskað þess að geta opnað bók eða vefsíðu og fengið svarið.
Nú ætla ég að reyna að blogga um hvað ég hef í matinn, kannski get ég þá notað amk. gamlar hugmyndir frá mér. Eflaust á eitthvað fleira eftir að rata hér inn, en ég lofa engu.
Nú ætla ég að reyna að blogga um hvað ég hef í matinn, kannski get ég þá notað amk. gamlar hugmyndir frá mér. Eflaust á eitthvað fleira eftir að rata hér inn, en ég lofa engu.
Subscribe to:
Posts (Atom)